Hríslan

Hríslan - Verkefnahugmyndir stofnana og fyrirtækja á Austurlandi
Málþing á Fljótsdalshéraði um stjórnun þjóðgarða og friðlýstra svæða
11. - 12. október 2010
Vinnuhópur á vegum Vísindagarðsins ehf vinnur nú  að undirbúningi málþings um stjórnun friðlýstra svæða .  Frummælandi er Stephen McCool sem er alþjóðlega virtur sérfræðingur á sviði þjóðgarðastjórnunar og höfundur fjölda rita um málefnið.  Auk hans munu taka til máls íslenskir sérfræðingar.
 
Málþingið hefst á hádegi  11.október og verða fyrirlestrar þann dag.  Þriðjudaginn 12.október verður farin vettvangsferð inn í Austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem umræðum verður haldið áfram í hópum.
 
Í tengslum við málþingið  verður 13. og 14.október haldið  námskeið/vinnustofa þar sem Stephen McCool  verður aðal leiðbeinandinn.  Meginumfjöllunarefni námskeiðsins er LAC (Limits of Acceptable Change) sem er þekkt aðferðafræði við skipulag og stjórnun friðlýstra svæða. Einnig verður fjallað um alþjóðlega ábyrgð okkar varðandi friðlýst svæði.
  Námskeiðið hentar sérstaklega vel starfsmönnum friðlýstra svæða auk annarra sem láta sig málefnið varða.
 
Ítarleg dagskrá verður gefin út fljótlega og birt hér á síðunni og á heimasíðu  Vísindagarðsins  www.visindagardurinn.is  
 
 
Vinir Vatnajökuls auglýsa eftir styrkumsóknum

Vinir Vatnajökuls eru Hollvinasamtök Vatnajökulsþjóðgarðs.  Samtökin  styrkja rannsóknir, kynningar- og fræðslustarf sem stuðlar að því að sem flestir geti notið náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs.  Næsti umsóknarfrestur er til 29.sept. 2010.

Hægt er að fá nánari upplýsingar og sækja um styrk á heimasíðu samtakanna.

 
Námsheimsóknir - auglýst eftir umsóknum

Menntaáætlun Evrópusambandsins auglýsir eftir umsóknum um námsheimsóknir.  Seinni umsóknarfrestur ársins er 15.okt.

Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu Menntaáætlunar ESB

 
Umsóknarfrestur heimkomustyrkja (Reintegration Grants) 7.september

Næsti umsóknarfrestur heimkomustyrkja (Reintegration Grants) í Mannauðsáætlun 7.rannsóknaáætlunar  Evrópusambandsins er 7.september 2010.  Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem hafa starfað að rannsóknum utan Evrópu samfellt í þrjú ár eða meira og vilja hefja rannsóknir innan álfunnar.

Vísindafólk sem þegar hefur hafið störf á Íslandi hefur kost á að sækja um styrkinn allt að ári eftir upphaf starfs.

Umsóknargögn og frekari upplýsingar má nálgast í gegnum síðuna http://www.rannis.is/7ra/mannaudur/irg/

Upplýsingar veitir Þorsteinn Brynjar Björnsson á alþjóðasviði Rannís í síma 515 5800.  Einnig má senda fyrirspurn á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Renewable energy in the public sector

leading the way to zero carbon

Ráðstefna í "The Barbican" í London - 26. október 2010

Nánari upplýsingar á heimasíðu ráðstefnunnar.

 
Þekkingarnet íslands?

Draumurinn um sjálfbært þekkingarsamfélag

Ráðstefna 23.mars 2010

Þekkingarnet Austurlands, Búðareyri 1, Reyðarfirði kl: 9:30

Markmið ráðstefnunnar er að kynna niðurstöður úr þekkingaryfirfærsluverkefninu „Net-University“ þar sem fram koma lausnir og leiðir í átt að samræmdu dreifnámsframboði, stoðþjónustu og þróunarumhverfi fyrir staðbundið nám. Kynnt eru dæmi um samstarfsnet, samræmd námsumhverfi, staðbundið háskólanám og mikilvægi alls þessa í byggðaþróun. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.nethaskolinn.is.

Tilboð á flugi:  Ráðstefnugestum gefst kostur á að kaupa flug frá Reykjavík til Egilsstaða á 19.360.-kr. Fargjaldið er eigöngu bókanlegt hjá Hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570 3075 virka daga milli kl. 09 og 16 eða senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Ráðstefnan er öllum opin en ráðstefnugjald er kr. 2.000 en innifalið í því eru léttar veitingar á ráðstefnunni og rútuferðir frá og til Egilsstaða. Skráningu lauk föstudaginn 19.mars. 

Nánari upplýsingar um verkefnið og ráðstefnuna veitir verkefnastjóri, Stefanía G. Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Þekkingarnets Austurlands, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og sími 891-6677.

Ferðatilhögun ráðstefnugesta frá Reykjavík
07:00-07:30 Reykjavíkurflugvöllur
08:30-09:20 Rúta frá Egilsstaðaflugvelli í Fróðleiksmolann á Reyðarfirði
09:30-16:00 Ráðstefna, sjá dagskrá hér fyrir neðan.
16:30-17:00 Rúta til Egilsstaða
17:30-18:45 Léttur kvöldverður á Hótel Héraði, greiðist af ráðstefnugestum, forréttur, aðalréttur og kaffi 2.950 kr.
19:00-19:25 Mæting á Egilsstaðaflugvelli, flogið kl. 19:25 til Reykjavíkur

Dagskrá

09:30 - 09:50 Ávarp menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir 
09:50 - 10:20Netháskólaverkefnið samantekt, Stefanía G. Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Þekkingarnets Austurlands
10:20 - 11:20Value of academic partnership and distributed education. Best practices from the University of Highlands network in Scotland. Professor Frank Rennie, Lews Castle College
11:20 - 11:50Universities role in lifelong learning and distributed education. Svante Hultman, Jönköping University
11:50 - 12:30Knowledge creation and distribution in Labrador – Newfoundland. Sheila Downer, SmartLabrador og Ivan Emke frá Sir Wilfred Grenfell College - Memorial University's Corner Brook campus
12:30 - 13:10Léttur hádegisverður / lunch
13:10 - 13:30Enhancement of regional development in Bornholm Denmark through MOLLY „Master i Oplevelsesledelse i Yderområder“. Karin Topsø Larsen, consultant from CRT (Centre for regional- and tourism research, www.crt.dk )
13:30 - 13:50Stefnumótun og þróun sveigjanlegs náms við Háskólann á Akureyri. Dr. Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, forstöðumaður RHA, Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar HA
13:50 - 14:10Svæðasamstarf og Sóknaráætlun, samstarf mennta-, rannsókna-, menningar- og þróunarstofnana á landinu, verkefni á vegum menntamálaráðuneytisins. Hellen Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu
14:10 - 14:30Erum við komin inn í 21. öld eða ekki? Tillaga að samstarfsmódeli. Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu
14:30 - 15:20Hópavinna
15:20 - 15:30Kaffi
15:30 - 15:50Kynningar hópa
15:50 - 16:00Samantekt ráðstefnustjóra, Stefán Stefánsson deildarstjóri símenntunar í mennta- og menningarmálaráðuneytinu

 

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 2