Hríslan

Hríslan - Verkefnahugmyndir stofnana og fyrirtækja á Austurlandi
Vinnuaðstaða

Í Sandaseli í Skaftafelli er náttúruskólastofa og rannsóknaherbergi en ekkert netsamband. Aðstaðan hefur verið leigð rannsóknahópum til styttri dvalar. 

Háskólasetrið á Hornafirði býður fræði- og vísindamönnum upp á skrifstofuaðstöðu.  Þar er ekki rannsóknastofa en raungreinastofa framhaldsskólans hefur verið notuð þegar rannsóknaaðstöðu hefur þurft. 

Eitthvað er um að fyrirtæki og sveitarfélög taki á móti fólki en það er óformlegt og ekki auglýst.

Nemar í rannsóknatengdu námi hafa fengið skrifstofuaðstöðu hjá Þekkingarneti Austurlands á Egilsstöðum.