Hríslan

Hríslan - Verkefnahugmyndir stofnana og fyrirtækja á Austurlandi
Styrkir
Rannsóknanámssjóður Austurlands

Rannsóknanámssjóður Austurlands var stofnaður í lok árs 2009 með framlagi frá Vaxtarsamningi Austurlands.  Markmið sjóðsins er að efla fræðastarf á Austurlandi með því að auðvelda nemendum að vinna skólaverkefni í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki fjórðungsins.  Styrkur er veittur samkvæmt útlögðum kostnaði allt að 100 þús. kr. eftir stærð verkefnis.  Umsóknareyðublað má nálgast hér

Umsóknarfrestur er til 1.okt 2010

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Á. Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá ÞNA ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) í síma:  477 1838.

 

Hér fyrir neðan er listi yfir vefsíður sem veita upplýsingar um styrki í boði til náms og rannsókna.

Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins hefur unnið "handbók um styrki".  Þar er að finna upplýsingar um íslenska og erlenda styrktarsjóði til náms og rannsókna bæði innanlands og erlendis.

Byggðastofnun birtir á sinni síðu upplýsingar um fjölþjóðleg samstarfsverkefni og styrki.

Edda Öndvegissetur veitir styrki til verkefna á sviði jafnréttis  og margbreytileika.

Evrópa unga fólksins:  Ungmennaáætlun Evrópusambandsins veitir styrki til fólks á aldrinum 13-30 ára.

Evrópusamvinna er heiti á vef þar sem kynnt eru tækifæri og styrkir í Evrópusamstarfi.

Fiskræktarsjóður úthlutar ár hvert til  verkefna tengdum fiskrækt og fiskeldi í landinu.

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna.

Hugvísindastofnun birtir upplýsingar um styrki til verkefna á hugvísindasviði.

Kvískerjasjóður, sem stofnaður var til heiðurs systkinanna á Kvískerjum í Öræfum, styrkir rannsóknir á náttúrufari og menningarminjum í Austur Skaftafellssýslu.

Menningar- og minningarsjóður kvenna var stofnaður í minningu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur.  Hlutverk sjóðsins er að styrkja konur til náms með náms- og ferðastyrkjum.  Sjóðurinn styrkir ennfremur konur til ritstarfa og verðlaunar ritgerðir um málefni kvenna.

Menningarráð Austurlands úthlutar árlega styrkjum til eflingar menningarstarfsemi og menningartengdri ferðaþjónustu á Austurlandi.

Menningarsjóður kvenna á Íslandi var stofnaður af hluthöfum Hlaðvarpans ehf og styrkir menningarmál kvenna á Íslandi

Náttúru- og menningarsetrið Skálanes veitir og hefur milligöngu með styrki til verkefna sem tengjast svæðinu í kringum Skálanes.

Náttúruverndarsjóður Pálma Jónssonar styrkir verkefni sem fást við sköpun og miðlun þekkingar um náttúruna.

Norræna rannsóknaráðið (NordForsk) er sjálfstæð stofnun sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina og styrkir rannsóknarstarf og vísindamenntun á Norðurlöndum.

Penninn rekur fjóra styrktarsjóði.

Rannís birtir á sínum vef upplýsingar um eigin sjóði en einnig aðra sjóði. 

Rannsóknasjóður Fjarðabyggðar og Landsbanka Íslands styrkir rannsóknarverkefni sem unnin eru í og um Fjarðabyggð.

Stuðningssjóður Alcoa styrkir samfélagsverkefni.  Verkefni er varða nærsamfélag Fjarðaáls njóta forgangs.

Vegagerðin veitir árlega styrki til rannsóknaverkefna.  Aðilar innan og utan Vegagerðarinnar geta sótt um fjárframlög.  Rannsóknunum er skipt í fjóra meginflokka:  Mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.

Verkefna- og rannsóknasjóður Fljótsdalshrepps og Landsbanka Íslands styrkir rannsóknavinnu sem tengist og/eða nýtist Fljótsdalshreppi.

Verkefnasjóður sjávarútvegsins styrkir rannsóknir og nýsköpun á sviði sjávarútvegs og fiskveiðieftirlits.

Þróunarfélag Austurlands birtir á sinni síðu lista yfir styrki í boði.