Hríslan

Hríslan - Verkefnahugmyndir stofnana og fyrirtækja á Austurlandi
Ráðstefnur
Málþing á Fljótsdalshéraði um stjórnun þjóðgarða og friðlýstra svæða
11. - 12. október 2010
Vinnuhópur á vegum Vísindagarðsins ehf vinnur nú  að undirbúningi málþings um stjórnun friðlýstra svæða .  Frummælandi er Stephen McCool sem er alþjóðlega virtur sérfræðingur á sviði þjóðgarðastjórnunar og höfundur fjölda rita um málefnið.  Auk hans munu taka til máls íslenskir sérfræðingar.
 
Málþingið hefst á hádegi  11.október og verða fyrirlestrar þann dag.  Þriðjudaginn 12.október verður farin vettvangsferð inn í Austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem umræðum verður haldið áfram í hópum.
 
Í tengslum við málþingið  verður 13. og 14.október haldið  námskeið/vinnustofa þar sem Stephen McCool  verður aðal leiðbeinandinn.  Meginumfjöllunarefni námskeiðsins er LAC (Limits of Acceptable Change) sem er þekkt aðferðafræði við skipulag og stjórnun friðlýstra svæða. Einnig verður fjallað um alþjóðlega ábyrgð okkar varðandi friðlýst svæði.
  Námskeiðið hentar sérstaklega vel starfsmönnum friðlýstra svæða auk annarra sem láta sig málefnið varða.
 
Ítarleg dagskrá verður gefin út fljótlega og birt hér á síðunni og á heimasíðu  Vísindagarðsins  www.visindagardurinn.is  
 
 
Renewable energy in the public sector

leading the way to zero carbon

Ráðstefna í "The Barbican" í London - 26. október 2010

Nánari upplýsingar á heimasíðu ráðstefnunnar.

 
Þekkingarnet íslands?

Draumurinn um sjálfbært þekkingarsamfélag

Ráðstefna 23.mars 2010

Þekkingarnet Austurlands, Búðareyri 1, Reyðarfirði kl: 9:30

Markmið ráðstefnunnar er að kynna niðurstöður úr þekkingaryfirfærsluverkefninu „Net-University“ þar sem fram koma lausnir og leiðir í átt að samræmdu dreifnámsframboði, stoðþjónustu og þróunarumhverfi fyrir staðbundið nám. Kynnt eru dæmi um samstarfsnet, samræmd námsumhverfi, staðbundið háskólanám og mikilvægi alls þessa í byggðaþróun. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.nethaskolinn.is.

Tilboð á flugi:  Ráðstefnugestum gefst kostur á að kaupa flug frá Reykjavík til Egilsstaða á 19.360.-kr. Fargjaldið er eigöngu bókanlegt hjá Hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570 3075 virka daga milli kl. 09 og 16 eða senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Ráðstefnan er öllum opin en ráðstefnugjald er kr. 2.000 en innifalið í því eru léttar veitingar á ráðstefnunni og rútuferðir frá og til Egilsstaða. Skráningu lauk föstudaginn 19.mars. 

Nánari upplýsingar um verkefnið og ráðstefnuna veitir verkefnastjóri, Stefanía G. Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Þekkingarnets Austurlands, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og sími 891-6677.

Ferðatilhögun ráðstefnugesta frá Reykjavík
07:00-07:30 Reykjavíkurflugvöllur
08:30-09:20 Rúta frá Egilsstaðaflugvelli í Fróðleiksmolann á Reyðarfirði
09:30-16:00 Ráðstefna, sjá dagskrá hér fyrir neðan.
16:30-17:00 Rúta til Egilsstaða
17:30-18:45 Léttur kvöldverður á Hótel Héraði, greiðist af ráðstefnugestum, forréttur, aðalréttur og kaffi 2.950 kr.
19:00-19:25 Mæting á Egilsstaðaflugvelli, flogið kl. 19:25 til Reykjavíkur

Dagskrá

09:30 - 09:50 Ávarp menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir 
09:50 - 10:20Netháskólaverkefnið samantekt, Stefanía G. Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Þekkingarnets Austurlands
10:20 - 11:20Value of academic partnership and distributed education. Best practices from the University of Highlands network in Scotland. Professor Frank Rennie, Lews Castle College
11:20 - 11:50Universities role in lifelong learning and distributed education. Svante Hultman, Jönköping University
11:50 - 12:30Knowledge creation and distribution in Labrador – Newfoundland. Sheila Downer, SmartLabrador og Ivan Emke frá Sir Wilfred Grenfell College - Memorial University's Corner Brook campus
12:30 - 13:10Léttur hádegisverður / lunch
13:10 - 13:30Enhancement of regional development in Bornholm Denmark through MOLLY „Master i Oplevelsesledelse i Yderområder“. Karin Topsø Larsen, consultant from CRT (Centre for regional- and tourism research, www.crt.dk )
13:30 - 13:50Stefnumótun og þróun sveigjanlegs náms við Háskólann á Akureyri. Dr. Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, forstöðumaður RHA, Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar HA
13:50 - 14:10Svæðasamstarf og Sóknaráætlun, samstarf mennta-, rannsókna-, menningar- og þróunarstofnana á landinu, verkefni á vegum menntamálaráðuneytisins. Hellen Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu
14:10 - 14:30Erum við komin inn í 21. öld eða ekki? Tillaga að samstarfsmódeli. Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu
14:30 - 15:20Hópavinna
15:20 - 15:30Kaffi
15:30 - 15:50Kynningar hópa
15:50 - 16:00Samantekt ráðstefnustjóra, Stefán Stefánsson deildarstjóri símenntunar í mennta- og menningarmálaráðuneytinu

 

 

 
Rannsóknaþing Austurlands 2009
Fimmtudagur, 12. Febrúar 2009 09:07

Rannsóknaþing Austurlands 2009 verður haldið að Skriðuklaustri 14.febrúar.

 

Dagskrá:

Kl. 11:00    Fornleifar á Skriðuklaustri. Steinunn Kristjánsdóttir

Kl. 11:25    Ameríski draumurinn - Hugmyndir Fjórðungsþings Austfirðinga og Fjórðungssambands Norðlendinga um breytta stjórnskipun á Íslandi. Smári Geirsson

Kl. 11:50    Fjölmiðlun og austfirskt samfélag um aldamótin 1900.  Hrafnkell Lárusson

Kl. 12:15 - 13:00  matur

Kl. 13:00    Frost eða funi? Forsendur vöktunar á áhrifum Vatnajökulsþjóðgarðs. Þorvarður Árnason

Kl. 13:25    Hin ýmsu gervi Þórbergs Þórðarsonar. Soffía Auður Birgisdóttir.

Kl. 13:55    Framfarasýn í sjávarútvegi:  Konur og blikkbeljur á Austurlandi. Anna Karlsdóttir

Kl. 14:20    Fjallkirkjan og Fljótsdalurinn. Tengsl ævisögu og sjálfsævisögu í verkum Gunnars Gunnarssonar. Jón Yngvi Jóhannsson.

Kl. 14:45 - 15:10    kaffi

Kl. 15:10 - 17:00    Hugmyndir um samtök fræðimanna á Austurlandi, umræðufundur.

Framsöguerindi:
Íslenska akademían. Viðar Hreinsson, ReykjavíkurAkademíunni
Vestfjarða-akademían. Þorleifur Ágústsson
AkureyrarAkademían. Þóra Pétursdóttir

Rannsóknatorg Austurlands og Austurlands-akademía.  Kynning á hugmyndum.  Stefanía Kristinsdóttir og Guðrún Jónsdóttir.

Umræður milli kynninga og í lokin.

Allir velkomnir.