Hríslan

Hríslan - Verkefnahugmyndir stofnana og fyrirtækja á Austurlandi
Námsstyrkir
Styrkir til náms í Þýskalandi

Eftirtaldi styrkir eru í boði fyrir Íslendinga til náms og rannsóknastarfa í Þýskalandi á námsárinu 2010-2011:

  • Allt að fjórir styrkir til 10-24 mánaða námsdvalar/rannsóknastarfa.  Styrkirnir eru ætlaðir námsmönnum sem hafa lokið BA/BS prófi eða sambærilegu eftir 2003 eða kandidötum sem lokið hafa MA/MS prófi eftir 2006.  Einnig er boðið upp á styrki til 6 mánaða námsdvalar.
  • Allt að þrír styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið 2010.  Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi og leggja stund á nám í öðrum greinum en Þýsku.  Umsækjendur þurfa að hafa góða undirstöðukunnáttu í þýsku.
  • Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og rannsóknastarfa í allt að sex mánuðum og styrkir til fyrrverandi DAAD-styrkþegar.
  • Styrkir fyrir nemendur í listgreinum.

Nánari upplýsingar fást hjá menntamálaráðuneytinu, á vef Deutscher Akademischer Austauschdienst (DAAD) og hjá Anniku Grosse lektor í þýsku við Háskóla Íslands ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) .

Eyðublöð fyrir umsóknir og fylgiskjöl með umsókn er hægt að nálgast á vef DAAD.

Umsóknir ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum skulu sendar menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík fyrir 6.okt nk.

 

 
Georgíustyrkur rotary

Rotary veitir styrk til náms í Georgíufylki í Bandaríkjunum.  Um er að ræða eins árs dvöl og er innifalið í styrknum skólahald, námsbækur, uppihald og smávegis vasapeningar.  Aldurstakmark er 18-24 ára og stúdentspróf skilyriði.  Hægt er að sækja um í byrjun árs á síðasta ári framhaldsskóla.  Umsóknum þarf að skila fyrir 1.október.  Nánari upplýsingar er hægt að fá á heimasíðu rotary á íslandi  og http://www.grsp.org/apprequirements.htm